Leita í fréttum mbl.is

Samkynhneigð á Siglufirði

Fólk hefur oft spurt mig hvort það hafi ekki verið erfitt fyrir mig að koma út úr skápnum í svona litlu bæjarfélagi. Ég get ekki sagt það, mín reynsla var sko allt önnur en erfið. Auðvitað er alltaf erfitt að taka skrefið og viðurkenna þetta, ekki að það sé eitthvað að því að vera samkynhneigður, þetta er bara svo stórt skref fyrir marga, sérstaklega þegar þú ert ráðvilltur unglingur. En hjá mér, þá kom þetta auðvitað ekki mörgum á óvart, það einhvernveginn vissu þetta allir með mig nema ég sjálf því ég var aldrei viss hvað þetta var, ég hafði aldrei fengið einhverja kynningu eða fræðslu um að það væri bara allt í góðu að bera tilfinningar til sama kyns. Ég er líka svo rosalega opin með þetta allt saman og ég er aldrei feimin með að tala um þetta eða fræða fólk þegar það hefur spurningar. Það er einmitt málið með Siglfirðinga, við erum nú alveg þekkt fyrir að vera opin og viðkunnarleg. En ég hef aldrei fengið nein aðköst frá Siglfirðingum gagnvart mér og minni kynhneigð. Fyrir það elsku Siglfirðingarnir mínir er ég svo þakklát, takk fyrir að taka mér eins og ég er. Bíðið þó bara, ég er rétt að byrja að skera mig út úr. Mér finnst svo frábært að hugsa til framtíðarinnar, þegar ég er búin að gera allt sem ég ætla mér, búin að skoða öll lönd í heiminum, kynna mér allt sem heimurinn hefur upp á að bjóða, vera orðin fræg fyrir hitt og þetta, að vera lítil manneskja frá litlu landi og lýsa síðan ást minni á litla fallega heimabæinn minn, Siglufjörð. Það er ekki stærðin á staðnum sem skiptir máli, heldur stærðin á hjarta þínu og huga, sama hvaðan þú ert og hvað þú ert, þú getur orðið allt sem þú vilt.

Þegar ég var unglingur að alast upp á Siglufirði þá auðvitað fór maður á uppreisnatímabilið og maður þoldi ekki að búa á Siglufirði. Þetta var svo lítill staður og ekkert hægt að gera, en auðvitað bara 16 ára ráðvilltur unglingur með hugann fullann af hugmyndum að reyna að finna út hvað maður vildi gera, hver þú ert, hvernig þinn stíll er og á að vera, komin á það stig að vilja prufa og kanna hluti. Mér fannst ég vera svo fullorðin og orðin alveg nógu þroskuð til þess að standa á eigin fótum og vildi bara komast í burtu til þess að kanna hvað væri þarna úti að bíða eftir mér. Ég vildi kynnast nýju fólki, djamma, ekki vera alltaf undir smásjá hjá mömmu og pabba og geta gert það sem ég vildi, en ég skal segja ykkur það, sama hvað ég gerði, mamma var alltaf í hvert einasta skipti búin að komast að því daginn eftir! Það er alveg örugglega 98% af unglingum sem ganga í gegnum þetta stig, sérstaklega þeir sem búa út á landi og eru frá litlum stöðum, en það er einmitt svo fullkomlega eðlilegur hlutur að vilja prufa allt í heiminum og kynnast nýjum hlutum, komast í nýtt umhverfi, fá að nýta allt sem okkur hefur verið gefið frá fæðingu, reyna á hvað við getum og öðlast gott, litríkt, menningarlegt og fullnægt líf. Það reynist mörgum mjög erfitt tímabil og það er ekkert skrýtið að einmitt fólk á aldrinum 16-25 sé stundum eins og geðklofar sem vita aldrei í hvort fótinn þau eiga að stíga, því um leið og við öðlumst okkar sjálfstæði og förum að skoða hvað lífið hefur upp á að bjóða, að við fáum víðáttubrjálæði og getum ekki tekið ákvarðanir um hvað við eigum eiginlega að gera með líf okkar. Það eru endalausir möguleikar og margir vilja kanna þá áður en þeir setjast niður með konu/mann og börn en það er annar yndislegur kafli í lífinu. En þar sem við erum lítið bæjarfélag sem þýðir meira frelsi fyrir krakka að alast upp, vera örugg úti að leika sér og kynnast, börnin tengjast meira og enda er mjög áberandi hversu bekkirnir í grunnskóla eru nánir og halda ennþá sambandi eftir margra ára skólagöngu.

Það líður þó ekki dagur án þess að ég hugsi um Siglufjörð og ég fyllist alltaf jafn miklu stolti. Mér finnst það forréttindi að hafa alist upp á Siglufirði sem hefur hjálpað mér að þroskast og undirbúa mig fyrir stærri og frábæra hluti í lífinu.


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Frábær pistill hjá þér Birgitta mín :*:* það er lang besta að vera Siglfirðingur ;)

Ragna Dís Einarsdóttir (IP-tala skráð) 3.2.2011 kl. 14:32

2 identicon

Birgitta! Þetta er frábært blogg hjá þér! ;*** þú ert snillingur og er ég sammála þessu með fjörðinn fagra! love á þig! ;)

Bryndís Þorsteinsdóttir (IP-tala skráð) 3.2.2011 kl. 14:49

3 identicon

Flottur pistill hjá þér Birgitta, er ekki pláss fyrir "Jákvæðnihorn Birgittu" í Hellunni? :)

Óli Biddýar (IP-tala skráð) 3.2.2011 kl. 14:53

4 Smámynd: Birgitta Þorsteins

takk fyrir það allir :* en Óli haha jú, ég er að skrifa fyrir Helluna líka, kemur í næstum blöðum eitthvað smáræði alltaf frá mér :)

Birgitta Þorsteins, 3.2.2011 kl. 14:58

5 identicon

Skemmtilegt blogg hjá þér! Gaman að lesa svona jákvætt og uppbyggjandi efni:)

Jóna Guðný Jónsdóttir (IP-tala skráð) 3.2.2011 kl. 14:59

6 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Frábær grein hjá þér og til hamingju með að vera svona algerlega tilbúin að tjá þig um sjálfa þig og þínar tilfinningar. 

Siglufjörður er og hefur alltaf verið fínn staður og fólkið dásamlegt.

Axel Jóhann Axelsson, 3.2.2011 kl. 15:06

7 identicon

Sammála systur minni, ekkert smá flott hjá þér Birgitta :) Það hefur og mun alltaf vera gott að búa á Siglufirði ;)..

Auður Kapitola (IP-tala skráð) 3.2.2011 kl. 15:06

8 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Alltaf eru karlarnir að missa af fleiri og fleiri kvenskörungum, og fallegum konum en svona er lífið. gangi þér vel Birgitta Þorsteinsdóttir. KV. Bláskjár.

Eyjólfur G Svavarsson, 3.2.2011 kl. 16:10

9 Smámynd: Birgitta Þorsteins

Enn og aftur takk fyrir fólk þið eruð æði. Haha, já svona er lífið, en sem betur fer eru ekki allir eins ;)

Birgitta Þorsteins, 3.2.2011 kl. 17:03

10 Smámynd: Adda Laufey

Velkomin á MBL bloggið, flottur pistill hjá þér.Siglufjörður er fallegur staður

Adda Laufey , 6.2.2011 kl. 23:48

11 Smámynd: Birgitta Þorsteins

Takk fyrir það. Já Siglufjörður má eiga það ;)

Birgitta Þorsteins, 9.2.2011 kl. 09:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Birgitta Þorsteins
Birgitta Þorsteins
21 ára litrík pía frá Siglufirði með hugann fullann af hugmyndum og ævintýraþrá til tunglsins

Eldri færslur

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband